Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fulham hafnaði stóru tilboði frá Leeds
Rodrigo Muniz.
Rodrigo Muniz.
Mynd: EPA
Fulham hafnaði nýverið tilboði frá Leeds í sóknarmanninn Rodrigo Muniz.

Frá þessu segir Evening Standard en tilboðið hljóðaði upp á allt að 32 milljónir punda.

Ef tilboðið hefði verið samþykkt, þá hefði það gert Muniz að næst dýrasta leikmanni í sögu Leeds á eftir framherjanum Georginio Rutter sem var keyptur frá Hoffenheim árið 2023.

Fulham lítur á Muniz sem einn sinn verðmætasta leikmann og ætlar ekki að selja hann nema of gott tilboð berist.

Leeds eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili og ætlar félagið sér að kaupa öflugan framherja. Leeds mun þó örugglega skoða aðra kosti núna fyrst tilboðinu var hafnað.
Athugasemdir
banner
banner