Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Neymar fékk tilboð frá Fluminense
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Brasilíska fótboltastjarnan Neymar er ekki með á HM félagsliða. Kantmaðurinn er samningsbundinn Santos í heimalandinu og segist hafa hafnað tækifæri að taka þátt í HM.

Fluminense setti sig í samband við Neymar í tilraun til að fá hann yfir til sín fyrir heimsmeistaramótið. Neymar hafnaði því tilboði vegna meiðsla.

„Ég var nálægt því að skrifa undir hjá Fluminense fyrir HM, þetta var gott tækifæri fyrir mig en ég ákvað að vera eftir hjá Santos. Ég ákvað að vera eftir til að ná mér aftur eftir meiðsli því ég finn að ég er ekki 100% tilbúinn," segir Neymar.

Það er mikið af orðrómum á sveimi sem telja Neymar vera búinn að missa áhugan á fótbolta eftir félagaskipti sín frá Barcelona. Leikmaðurinn var alltaf meiddur í sádi-arabísku deildinni og er byrjaður að lenda í meiðslavandræðum í Brasilíu.

Faðir Neymar tjáði sig um neikvæða orðróma í garð sonar síns.

„Fólk getur ekki trúað því að Neymar sé á tjúttinu á hverju kvöldi. Hann er fagmaður innan vallar og utan vallar kemur engum öðrum við hvað hann gerir. Svo lengi sem það hefur ekki áhrif á frammistöðuna í leikjum og á æfingum," segir Neymar eldri.

„Þegar hann er í fríi þá má hann skemmta sér eins og annað fólk. Meiðslin sem hann hefur lent í á undanförnum árum stafa ekki af kvennafari hans. Haldið þið að hann hafi slitið krossband því hann tók þátt í pókerkvöldi?"
Athugasemdir