Stígur Diljan Þórðarson, kantmaður Víkings, fer í dag í myndatöku en óttast er að hann hafi brotið bein í ristinni.
Stígur kom inn á sem varamaður gegn KR á mánudag en gat einungis spilað um 24 mínútur vegna meiðslanna.
Hann gæti verið frá næstu mánuði vegna meiðslanna, en það kemur allt betur í ljós þegar hann fær niðurstöðu úr myndatökunni.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 KR
Stígur er fæddur 2006 og sneri aftur heim í Víking í vetur eftir tvö og hálft ár erlendis; fyrst í akademíu Benfica í Portúgal og svo hálft ár hjá Triestina á Ítalíu.
Hann hefur komið við sögu í öllum ellefu leikjum Víkings í Bestu deildinni til þessa, byrjað sjö og skorað eitt mark.
Athugasemdir