Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 20:41
Brynjar Ingi Erluson
Inter hætt að eltast við Höjlund
Inter hefur náð samkomulagi um Ange-Yoan Bonny
Inter hefur náð samkomulagi um Ange-Yoan Bonny
Mynd: EPA
Inter er hætt að eltast við danska framherjann Rasmus Höjlund og hefur nú ákveðið að snúa sér alfarið að Ange-Yoan Bonny, leikmanni Parma.

Höjlund var efstur á lista Inter fyrir sumargluggann fyrir framherjastöðuna, en leikmaðurinn tjáði sig opinberlega að hann vilji berjast fyrir framtíð sinni hjá Manchester United.

Sky Sports segir að Inter hafi því ákveðið að leita annað, en samkvæmt miðlinum er Inter búið að ná samkomulagi við Parma um Bonny.

Parma samþykkti 21 milljóna punda tilboð Inter, en það er ekki eina félagið sem er á eftir Bonny því Ítalíumeistarar Napoli hafa einnig áhuga. Bonny hefur ekki náð samkomulagi við Inter um kaup og kjör og er þetta því opin barátta.

Þessi 21 árs gamli framherji spilaði undir stjórn Cristian Chivu hjá Parma á síðasta tímabili en Chivu er nú tekinn við Inter.

Bonny skoraði 6 mörk og gaf 4 stoðsendingar í 37 leikjum sínum með Parma.
Athugasemdir
banner