Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
banner
   mið 18. júní 2025 10:46
Ívan Guðjón Baldursson
Gætu selt Son eftir æfingaferð í Suður-Kóreu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham er reiðubúið til að selja fyrirliða sinn Son Heung-min sem á aðeins eitt ár eftir af samningi við félagið, en stjórnendur vilja halda honum þar til í ágúst.

Tottenham fer í æfingaferð til Suður-Kóreu á undirbúningstímabilinu og vilja stjórnendur ekki selja Son of snemma til að missa ekki tekjur í æfingaferðinni.

Tottenham spilar meðal annars við Newcastle í æfingaferðinni en viðureign liðanna á að fara fram 3. ágúst, rétt fyrir upphaf næsta úrvalsdeildartímabils.

The Times greinir frá þessu og tekur fram að 33 ára gamall Son sé líklega ekki að fá nýjan samning hjá Tottenham.

Thomas Frank nýr þjálfari vill yngja upp í framlínunni og hefur gert Bryan Mbeumo, sinn fyrrum lærling hjá Brentford, að aðalskotmarki félagsins.

Félög í Sádi-Arabíu hafa mikinn áhuga á Son, en hann gæti einnig farið til Fenerbahce þar sem hann myndi spila undir stjórn José Mourinho. Þeir þekkjast vel eftir að Mourinho stýrði Tottenham í eitt og hálft ár frá 2019 til 2021 og eru sagðir hafa fundað saman á síðustu dögum.
Athugasemdir