Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 23:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daði Berg á leið í myndatöku vegna nárameiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daði Berg Jónsson, leikmaður Vestra, gat ekki spilað með liðinu gegn Þór í Mjólkurbikarnum vegna nárameiðsla.

Hann fer á morgun í myndatöku til að kanna alvarleika meiðslanna. Það verður að teljast ólíklegt að hann verði með gegn FH í 12. umferð Bestu deildarinnar á sunnudag, en Vestramenn halda í vonina.

Lestu um leikinn: Vestri 2 -  0 Þór

Daði er 19 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem er á láni hjá Vestra frá Víkingi og hefur verið einn allra besti leikmaður deildarinnar á tímabilinu.

„Við erum aðeins að spara hann. Daði fann eitthvað örlítið til, þannig bara spörum hann og vonandi verður hann klár á sunnudaginn,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, við Fótbolta.net þegar hann var spurður út í Daða eftir leikinn í kvöld.

Athugasemdir