Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 07:15
Ívan Guðjón Baldursson
HM félagsliða: Ramos skoraði gegn Inter
Lautaro Martínez skoraði fyrir Inter.
Lautaro Martínez skoraði fyrir Inter.
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru tveir leikir fram á HM félagsliða í nótt þar sem Inter mætti mexíkóska stórveldinu Monterrey og úr varð spennandi slagur.

Sergio Canales og Sergio Ramos, nafnarnir og fyrrum liðsfélagar í Real Madrid, voru báðir í byrjunarliði Monterrey sem tók óvænt forystuna gegn Inter í dag.

Hinn 39 ára gamli Ramos stangaði hornspyrnu frá Oliver Torres, fyrrum leikmanni Sevilla, í netið til að taka forystuna í fyrri hálfleik.

Inter var þó talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og verðskulduðu lærlingar Cristian Chivu að gera jöfnunarmark þegar Lautaro Martínez skoraði af stuttu færi eftir sendingu frá Carlos Augusto.

Staðan var jöfn í leikhlé og var síðari hálfleikurinn í járnum. Monterrey gerði vel í að drepa leikinn til að tryggja sér stig, en Mexíkóarnir fengu síðasta færi leiksins í uppbótartíma og tókst ekki að nýta það.

Monterrey var sterkari aðilinn í afar bragðdaufum síðari hálfleik en tókst ekki að stela sigrinum.

Liðin áttust við í fyrstu umferð og eru einnig í riðli með River Plate og Urawa Red Diamonds sem mættust í gær. River Plate hafði betur í þeirri viðureign, 3-1.

Ulsan HD frá Suður-Kóreu spilaði þá við Mamelodi Sundowns frá Suður-Afríku og voru Afríkanarnir sterkari aðilinn.

Það var ekki mikið marktækt sem átti sér stað í viðureigninni en Mamelodi var sterkara liðið heilt yfir.

Iqraam Rayners var sérstaklega líflegur og skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik, þrátt fyrir að hafa komið boltanum í netið þrisvar sinnum. Tvö mörk fengu ekki að standa eftir athugun í VAR-herberginu þar sem einu sinni var dæmd hendi í aðdragandanum og einu sinni rangstaða.

Mamelodi og Ulsan eru í riðli með Borussia Dortmund og Fluminense sem gerðu markalaust jafntefli í gær.

Monterrey 1 - 1 Inter
1-0 Sergio Ramos ('25)
1-1 Lautaro Martinez ('42)

Ulsan 0 - 1 Mamelodi
0-1 Iqraam Rayners ('36)
Athugasemdir
banner