Argentínska stórveldið Boca Juniors er nálægt því að landa miðjumanninum Leandro Paredes við leikmannahópinn hjá sér.
Paredes er efstur á óskalista Boca Juniors þar sem hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Roma á Ítalíu.
Paredes er þrítugur miðjumaður með 73 landsleiki að baki og varð hann heimsmeistari með Argentínu 2022, auk þess að vinna Copa América 2021 og 2024.
Paredes ólst upp hjá Boca Juniors og var svo seldur til Roma fyrir tíu árum síðan. Hann kom við hjá Zenit í Rússlandi og Paris Saint-Germain áður en hann sneri aftur til Roma.
Paredes á einnig leiki að baki fyrir Juventus, Empoli og Chievo.
Boca Juniors borgar um 3,5 milljón evrur til að kaupa Paredes.
Athugasemdir