Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ander Herrera dæmdur í fjögurra leikja bann á HM félagsliða
Ander Herrera.
Ander Herrera.
Mynd: EPA
Ander Herrera, miðjumaður Boca Juniors, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann á HM félagsliða.

Herrera var í byrjunarliði Boca gegn Benfica á dögunum en þurfti að fara af velli rétt áður en liðið komst yfir eftir rúmlega 20 mínútna leik.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk Benfica vítaspyrnu þegar brotið var á Nicolas Otamendi. Atvikið var skoðað í VAR en Herrera var ekki sáttur og veittist að dómaranum meðan hann skoðaði atvikið. Samherjar hans héldu honum frá og reyndu öryggisverðir það líka.

Herrera var með ógnandi tilburði við dómarann og hefur nú verið dæmdur í fjögurra leikja bann. Það er því ólíklegt að þessi fyrrum leikmaður Manchester United komi meira við sögu á mótinu.

Boca á eftir leiki gegn Bayern München og Auckland City eftir að hafa gert jafntefli við Benfica í fyrsta leik.


Athugasemdir
banner
banner