Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
   mið 18. júní 2025 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Best í Mjólkurbikarnum: Þá var þetta komið gott
Birta með verðlaunin.
Birta með verðlaunin.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Það var ótrúlega gaman að spila þennan leik," segir Birta Georgsdóttir, besti leikmaður 8-liða úrslita Mjólkurbikars kvenna. Fyrir það fær hún verðlaun frá Fótbolta.net og Mjólkursamsölunni.

Birta var maður leiksins þegar Breiðablik vann 5-1 sigur gegn HK í nágrannaslag. Hún skilaði af sér tveimur mörkum og stoðsendingu í fyrri hálfleik.

„Við fengum fullt af áhorfendum á leikinn og maður fann orkuna úr stúkunni. Þetta var ótrúlega skemmtilegt."

Var sérstakt að spila loksins á móti HK?

„Já, þetta er í fyrsta skiptið sem þessi lið mætast. Þó þær séu í Lengjudeildinni, þá eru þær þvílíkt góðar."

Breiðablik mun mæta ÍBV í undanúrslitunum og verður það áhugaverður leikur en ÍBV er eins og HK í Lengjudeildinni.

„Þær eru líka fáránlega góðar. Ég held að það verði hörkuleikur," sagði Birta en Breiðablik hefur núna þrjú ár í röð tapað í bikarúrslitum. Það er kominn tími á að breyta því.

„Eftir tapleikinn í fyrra, þá var þetta komið gott. Við ætlum að fara alla leið núna."
Athugasemdir
banner
banner
banner