Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Einn af nýliðum ársins að framlengja við Arsenal
Mynd: EPA
Myles Lewis-Skelly, leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, hefur samþykkt nýjan samning enska félagsins.

Lewis-Skelly er 18 ára gamall og braut sér leið inn í byrjunarlið Arsenal á nýafstaðinni leiktíð.

Englendingurinn er miðjumaður að upplagi en leysti af í vinstri bakverðinum og gerði það með stakri prýði.

Hann var tilnefndur sem besti ungi leikmaður ársins í deildinni og spilaði fyrstu A-landsleiki sína með Englandi í mars.

Fabrizio Romano greindi frá því á dögunum að Arsenal væri í viðræðum við Lewis-Skelly um nýjan samning og hefur hann nú samþykkt tilboð félagsins.

Hann mun skrifa undir langtímasamning á næstu dögum og eftir það fer Arsenal að vinna í því að framlengja við annan gríðarlega efnilegan leikmann, Ethan Nwaneri, sem fékk ágætlega stórt hlutverk í aðalliðinu á tímabilinu.
Athugasemdir
banner