Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 08:30
Elvar Geir Magnússon
Trump fékk treyju með friðarskilaboðum frá Ronaldo
Trump með Ronaldo treyjuna.
Trump með Ronaldo treyjuna.
Mynd: DT
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fékk óvænta gjöf úr höndum Antonio Costa, Portúgalans sem er forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins.

Trump var á fundi með leiðtogaráðinu í Kanada í vikunni og var honum færð árituð treyja frá sjálfum Cristiano Ronaldo.

Um er að ræða portúgalska landsliðstreyju sem Ronaldo hafði skrifað á: „Til Donald Trump forseta. Spila fyrir frið. Sem lið."

Viðeigandi skilaboð á þessum tímum, þar sem staðan í heimsmálunum er vægast sagt eldfim.

„Ég er hrifinn af henni, spilum fyrir frið," sagði Trump þegar hann fékk treyjuna frá Ronaldo.

Ronaldo hefur fimm sinnum unnið Ballon d'Or gullboltann sem besti leikmaður heims og þá er hann markahæsti landsliðsmaður sögunnar með 138 mörk. Hann verður væntanlega í eldlínunni með portúgalska landsliðinu á HM í Bandaríkjunum á næsta ári.


Athugasemdir
banner
banner