Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 16:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mudryk kærður fyrir brot á lyfjareglum
Mykhailo Mudryk.
Mykhailo Mudryk.
Mynd: EPA
Mykhailo Mudryk hefur verið kærður af enska fótboltasambandinu fyrir brot á lyfjareglum og á hann yfir höfði sér langt bann frá fótbolta.

Telegraph segir frá þessu en Mudryk gæti verið á leið í allt að fjögurra ára bann frá fótbolta.

Mudryk hefur ekkert spilað með Chelsea eftir að málið kom upp í nóvember síðastliðnum.

Það var lyfið lyfið meldonium sem felldi Mudryk en hann neitar að hafa tekið það visvítandi.

Mudryk er með sama lögfræðifyrirtæki að vinna fyrir sig og Paul Pogba. Franski miðjumaðurinn var dæmdur í 18 mánaða bann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Mudryk gekk í raðir Chelsea frá Shakhtar fyrir allt að 100 milljónir evra í janúar 2023 en félagið hafði þá unnið mikla baráttu við nágranna sína í Arsenal um undirskrift leikmannsins. Úkraínumaðurinn hefur valdið miklum vonbrigðum hjá Chelsea og lítið getað frammistöðulega séð.
Athugasemdir
banner
banner