Fyrrverandi leikmaður Everton, Pat Nevin, hefur hvatt David Moyes til að reyna að fá Rasmus Höjlund, framherja Manchester United.
Höjlund, sem gekk til liðs við United frá Atalanta á £72 milljónir punda árið 2023, hefur átt erfitt uppdráttar eftir lofandi byrjun hjá United.
Höjlund, sem gekk til liðs við United frá Atalanta á £72 milljónir punda árið 2023, hefur átt erfitt uppdráttar eftir lofandi byrjun hjá United.
Nevin telur að stíll Höjlund passi vel við leikskipulag Moyes og sé góður kostur fyrir Everton sem þurfa að fylla skarðið eftir Dominic Calvert-Lewin, sem er á förum þegar samningur hans rennur út í júní.
„Everton gæti skoðað möguleika á lánsmarkaðnum og Höjlund gæti verið freistandi kostur. Moyes hefur í gegnum tíðina lagt áherslu á harðduglega leikmenn frekar en markavélar sem skora 20-30 mörk á tímabili," segir Nevin
Moyes hefur talað um að þar sem félagið sé ekki í Evrópukeppni þá geri það því erfitt fyrir á leikmannamarkaðnum.
Athugasemdir