Englandsmeistarar Liverpool munu hefja titilvörn sína gegn Bournemouth á heimavelli en leikjadagskrá tímabilsins 2025-26 var gefin út í morgun.
Manchester United og Arsenal munu mætast strax í fyrstu umferð. Leeds, sem vann Championship-deildina á síðasta tímabili, fær Everton í heimsókn á Elland Road.
Manchester United og Arsenal munu mætast strax í fyrstu umferð. Leeds, sem vann Championship-deildina á síðasta tímabili, fær Everton í heimsókn á Elland Road.
Stuðningsmenn Everton þurfa að bíða þar til í annarri umferð eftir því að fá fyrsta deildarleikinn á nýjum leikvangi félagsins en hann verður gegn Brighton.
Enska úrvalsdeildin fer af stað föstudaginn 15. ágúst og henni lýkur þann 24. maí á næsta ári en hér má sjá hvernig fyrsta umferðin verður.
Föstudagur 15. ágúst
Liverpool - Bournemouth
Laugardagur 16. ágúst
Aston Villa - Newcastle
Brighton - Fulham
Nottingham Forest - Brentford
Sunderland - West Ham
Tottenham - Burnley
Wolverhampton Wanderers - Manchester City
Sunnudagur 17. ágúst
Chelsea - Crystal Palace
Manchester United - Arsenal
Mánudagur 18. ágúst
Leeds - Everton
???? ANNOUNCE 2025/26 PREMIER LEAGUE FIXTURES ????
— Premier League (@premierleague) June 18, 2025
Athugasemdir