Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
banner
   fim 19. júní 2025 15:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hvernig gekk síðast hjá Jóa Kalla? - Nefndi upphæðina sem ÍA þarf að borga
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Jóhannes Karl Guðjónsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Jói Kalli er fyrrum þjálfari ÍA.
Jói Kalli er fyrrum þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skagamenn eru á botni Bestu deildarinnar.
Skagamenn eru á botni Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flestir bendir til þess að Jóhannes Karl Guðjónsson verði næsti þjálfari ÍA. Hann taki við starfinu af Jóni Þór Haukssyni sem missti starfið á dögunum.

Jói Kalli er uppalinn hjá ÍA og var þjálfari liðsins áður en hann var ráðinn aðstoðarþjálfari landsliðsins snemma árs 2022. Vorið 2024 var hann svo ráðinn þjálfari AB í dönsku C-deildinni þar sem hann er enn í dag.

„Tímabilið er búið hjá Jóa Kalla í Danmörku. Hann er ekki heimskur, hann veit alveg hvernig staðan er upp á Skaga. Hann gæti alveg hafa látið einhvern vita að hann væri klár ef þeir vilja skipta. Þess vegna gerist þetta hratt," sagði Sæbjörn Steinke í Innkastinu.

„Þetta er kenning sem hljómar mjög rökrétt," sagði Elvar Geir Magnússon.

Sæbjörn sagði í þættinum að hann hefði heyrt að ÍA þyrfti að borga 2 milljónir króna til að fá Jóa Kalla lausan frá AB.

„Skagamenn vilja hafa Skagamann ef kostur er á," sagði Elvar. „Sagan sýnir að það eru algjörar undantekningar í mjög mörg ár ef það er ekki þjálfari frá Skaganum að þjálfa þetta lið," sagði Sæbjörn.

Hvernig gekk síðast hjá Jóa Kalla?
Eins og segir hér að ofan, þá hefur Jói Kalli áður þjálfað ÍA. Hann stýrði HK 2017 en tók svo við sem þjálfari ÍA fyrir tímabilið 2018 eftir að liðið hafði fallið úr efstu deild. Hann tók þá einmitt líka við af Jóni Þór.

„Ég er spenntur að stýra ÍA í fyrsta leik á Akranesvelli. Það hefur alltaf verið draumur eins og það var draumur að fara og spila í atvinnumennsku. Ég ólst upp við það að fylgjast með pabba (Guðjóni Þórðarsyni) þjálfa Skagaliðið og hafði alltaf þann draum að geta einhverntímann fetað í þau fótspor," sagði Jóhannes Karl við Fótbolta.net þegar hann tók við ÍA á þeim tíma.

ÍA flaug upp úr það sem þá hét Inkasso-deildin á fyrsta tímabilinu með Jóa Kalla og á öðru tímabilinu fór Skagaliðið frábærlega af stað í Pepsi Max-deildinni. Eftir sex leiki var ÍA á toppnum með 16 stig og það var mikill meðbyr í kringum félagið, en svo fór heldur betur að halla undan fæti og náði ÍA aðeins í ellefu stig það sem eftir lifði sumars; endaði að lokum í tíunda sæti.

Jói Kalli hélt svo ÍA uppi næstu tvö tímabilin á eftir en endirinn á tímabilinu 2021 var ævintýralegur. Í lokaumferðinni náði Keflavík tveggja marka forystu gegn ÍA og voru Skagamenn þá á leið niður. Þeir breyttu hins vegar stöðunni, unnu 3-2 og héldu sér uppi. „Karakterinn sem þessir gæjar sýna, þetta er ótrúlegt. Ég er búinn að segja það í allt sumar að ég hef gríðarlega mikla trú á þessum strákum og þeir sönnuðu það fyrir öllum landsmönnum að þeir eru magnaðir gæjar. Magnaðir gæjar," sagði Jói Kalli eftir þann ótrúlega leik.

ÍA fór líka í bikarúrslitin 2021 en tapaði gegn Víkingum. Fyrir tímabilið 2022 hætti Jói Kalli með Skagamenn til að gerast aðstoðarþjálfari landsliðsins og svo tók hann við AB í fyrra. Núna virðist hann vera á leið aftur upp á Skaga.

Hægt er að hlusta á Innkastið í heild sinni hér fyrir neðan.
Innkastið - Fyrsti hausinn fokinn
Athugasemdir
banner