Ítalska stórliðið Juventus rúllaði yfir Al Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, 5-0, í H-riðli í 1. umferð HM félagsliða í Bandaríkjunum í nótt.
Juventus gerði út um leikinn í fyrri hálfleiknum. Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani skoraði tvö mörk og þá gerðu þeir Kenan Yildiz og Francisco Conceicao sitt hvort markið.
Portúgalski varnarmaðurinn Alberto Costa og franski miðjumaðurinn Kephren Thuram voru báðir með tvær stoðsendingar.
Í þeim síðari gerði Conceicao annað mark sitt eftir stoðsendingu Pierre Kalulu.
Þægilegt hjá Juventus sem mætir næst Wydad frá Marokkó, en liðin leika í G-riðli ásamt Manchester City og auðvitað Al Ain.
Í H-riðli vann austurríska liðið RB Salzburg nauman 2-1 sigur á Pachuca frá Mexíkó.
Salomon Rondon var nálægt því að koma Pachuca yfir snemma leiks en markvörður Salzburg varði meistaralega.
Oscar Gloukh átti fína tilraun hinum megin á vellinum stuttu síðar og þá átti Kenedy skalla í þverslá fyrir Pachuca.
Ísraelinn Gloukh náði að koma Salzburg yfir undir lok hálfleiksins er hann lék skemmtilega á varnarmann Pachuca áður en hann teiknaði boltann efst upp í hægra hornið.
Pachuca-menn jöfnuðu leikinn á 56. mínútu þökk sé stórkostlegri aukaspyrnu Bryan Gonzalez. Fallegt mark sem telur ekki mikið því hinn 33 ára gamli Karim Onisiwo tókst að tryggja Salzburg sigurinn fimmtán mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma með laglegum skalla eftir fyrirgjöf frá hægri.
Góður sigur Salzburg sem mætir Al Hilal í næstu umferð á meðan Pachuca mætir Real Madrid.
Fyrstu umferðinni er formlega lokið, en önnur umferðin hefst í dag þegar Palmeiras tekur á móti Al Ahly frá Egyptalandi í fyrsta leik A-riðils áður en Lionel Messi og félagar í Inter Miami mæta Porto.
Úrslit og markaskorarar:
Al Ain 0 - 5 Juventus
0-1 Randal Kolo Muani ('11 )
0-2 Francisco Conceicao ('21 )
0-3 Kenan Yildiz ('31 )
0-4 Randal Kolo Muani ('45 )
0-5 Francisco Conceicao ('58 )
Pachuca 1 - 2 Salzburg
0-1 Oscar Gloukh ('42 )
1-1 Bryan Gonzalez ('56 )
1-2 Karim Onisiwo ('76 )
Athugasemdir