Nokkur stórveldi úr evrópska boltanum mæta til leiks á HM félagsliða í dag þar sem fjörið hefst með viðureign Manchester City gegn Wydad Casablanca klukkan 16:00.
Xabi Alonso stýrir svo Real Madrid í fyrsta sinn þegar liðið mætir stjörnum prýddu liði Al-Hilal frá Sádi-Arabíu.
Pachuca frá Mexíkó spilar svo áhugaverðan leik við RB Salzburg áður en Al-Ain frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum mætir Juventus í lokaleik kvöldsins.
Liðin eigast öll við í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins sem er haldið með breyttu sniði.
Leikir dagsins
16:00 Man City - WAC Casablanca
19:00 Real Madrid - Al Hilal
22:00 Pachuca - Salzburg
01:00 Al Ain - Juventus
Athugasemdir