Florian Wirtz mun fljúga til Liverpool í kvöld þar sem hann gengur frá félagaskiptum sínum frá Bayer Leverkusen til Liverpool.
Wirtz hefur verið í fríi á meðan Liverpool og Leverkusen hafa verið í viðræðum um félagaskipti hans. Liverpool mun borga 116,5 milljónir punda fyrir þennan hæfileikaríka leikmann.
Wirtz hefur verið í fríi á meðan Liverpool og Leverkusen hafa verið í viðræðum um félagaskipti hans. Liverpool mun borga 116,5 milljónir punda fyrir þennan hæfileikaríka leikmann.
Núna er fríinu lokið hjá Wirtz og mun hann fljúga til Liverpool í kvöld. Hann mun svo gangast undir læknisskoðun á morgun.
Wirtz mun skrifa undir fimm ára samning hjá Liverpool þar sem hann fær tæplega 200 þúsund pund í vikulaun. Hann gæti þó fengið allt að 245 þúsund pund í laun ef hann nær ákveðnum bónusum.
Wirtz var eftirsóttur í þessum glugga en hann valdi að fara í Liverpool þar sem hann var heillaður af hugmyndum Arne Slot, stjóra liðsins.
Athugasemdir