Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 14:19
Elvar Geir Magnússon
Viðræður sigldu í strand og Partey er á förum
Partey er á förum frá Arsenal.
Partey er á förum frá Arsenal.
Mynd: EPA
Thomas Partey, miðjumaður Arsenal, mun væntanlega yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út 30. júní. Samningaviðræður hans við Arsenal hafa siglt í strand samkvæmt fréttum.

Partey kom til Arsenal frá Atletico Madrid fyrir um 45 milljónir punda og hefur spilað 167 leiki á fimm árum með félaginu.

Barcelona og tyrknesk félög eru sögð hafa áhuga á að fá Partey í sunar raðir.

Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, hefur sagst vilja halda halda Partey í hópnum.

„Ég held að þetta hafi verið hans besta tímabil hvað varðar stöðugleika. Hann hefur leikið frábærlega og verið mjög mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Arteta um Partey.
Athugasemdir
banner
banner