Þýska úrvalsdeildarfélagið Bayer Leverkusen er í viðræðum við Liverpool um að fá miðvörðinn Jarell Quansah í sínar raðir.
Liverpool og Leverkusen hafa verið í góðu sambandi í sumar þar sem Liverpool er að kaupa Florian Wirtz frá Leverkusen fyrir 116,5 milljónir punda.
Liverpool og Leverkusen hafa verið í góðu sambandi í sumar þar sem Liverpool er að kaupa Florian Wirtz frá Leverkusen fyrir 116,5 milljónir punda.
Quansah skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool í október síðastliðnum en var ekki byrjunarliðsmaður þegar liðið varð Englandsmeistari á liðnu tímabili.
Leverkusen er í leit að miðverði eftir að Jonathan Tah ákvað að fara til Bayern München.
Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, tók við Leverkusen í sumar.
Athugasemdir