Napoli vill bæta við sig miðjumanni en Sky Sports segir að félagið hafi gert 30 milljóna evru tilboð í Matt O’Riley, leikmann Brighton.
Napoli, sem er Ítalíumeistari, hefur góða reynslu af því að sækja leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni.
Napoli, sem er Ítalíumeistari, hefur góða reynslu af því að sækja leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni.
Brighton lítur á O’Riley sem mikilvægan leikmann í áætlunum liðsins og vill ekki missa hann. O’Riley er danskur landsliðsmaður sem lék áður með Celtic.
Fleiri ítölsk félög hafa áhuga á honum en Gian Piero Gasperini, sem er nýtekinn við Roma, er mikill aðdáandi þessa 24 ára leikmanns.
Athugasemdir