Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Þremur færri jöfnuðu í uppbótartíma
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sindri 2 - 2 KFK
1-0 Gylfi Örn Á Öfjörð ('23 , Sjálfsmark)
1-1 Keston George ('58 )
2-1 Abdul Bangura ('66 )
2-2 Keston George ('96)
Rautt spjald: Dmytro Bondarenko, KFK ('55)
Rautt spjald: Pétur Máni Þorkelsson , KFK ('94)
Rautt spjald: Sigurður Orri Magnússon , KFK ('94)

Ótrúlegur leikur fór fram í 3. deildinni í gær þegar Sindri tók á móti KFK í eina leik dagsins á þjóðhátíðardaginn 17. júní.

Gylfi Örn Öfjörð skoraði eina markið í fyrri hálfleik en það reyndist vera sjálfsmark og því leiddu heimamenn 1-0 í hálfleik.

Dmytro Bondarenko var rekinn af velli í upphafi síðari hálfleiks og tókst tíu leikmönnum KFK að jafna metin með marki frá Keston George. Það leið þó ekki á löngu þar til Abdul Bangura tók forystuna fyrir heimamenn á Höfn á ný.

Þegar komið var í uppbótartíma fengu tveir leikmenn KFK að líta rauða spjaldið á sama tíma svo gestirnir voru aðeins átta eftir á vellinum.

Ótrúlega tókst Keston George að skora jöfnunarmark fyrir gestina á 96. mínútu, leikandi þremur mönnum færri.

Sindri Oskar Karol Jarosz (m), Ivan Paponja, Adam Zriouil, Toni Tipuric, Abdul Bangura, Patrekur Máni Ingólfsson (63'), Ibrahim Sorie Barrie (75'), Kristofer Hernandez (80'), Jóhann Frans Ólason (80'), Ivan Eres, Maríus Máni Jónsson (63')
Varamenn Vignir Snær Borgarsson (80'), Kjartan Jóhann R. Einarsson (63'), Emir Mesetovic (75'), Jóhannes Adolf Gunnsteinsson (63'), Óðinn Pálmason (80'), Arnar Hrafn Ólafsson, Róbert Marvin Gunnarsson (m)

KFK Jakub Górski (m), Gylfi Örn Á Öfjörð, Hubert Rafal Kotus (73'), Kaj Leo Í Bartalstovu (80'), Leonidas Baskas (73'), Keston George, Pétur Máni Þorkelsson, Sigurður Orri Magnússon, Mariusz Baranowski, Hlynur Már Friðriksson, Dmytro Bondarenko
Varamenn Olsi Tabaku (73), Ingvar Pálmi Vilhjálmsson, Liriam Ibrahimi (73), Artur Jan Balicki (80)
3. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Augnablik 8 6 2 0 23 - 9 +14 20
2.    Hvíti riddarinn 8 6 1 1 22 - 11 +11 19
3.    Magni 8 4 2 2 13 - 12 +1 14
4.    Reynir S. 8 4 1 3 19 - 20 -1 13
5.    Tindastóll 8 4 0 4 18 - 16 +2 12
6.    Árbær 8 3 2 3 23 - 23 0 11
7.    Sindri 9 3 2 4 13 - 15 -2 11
8.    KV 8 3 1 4 22 - 16 +6 10
9.    KF 8 2 4 2 11 - 10 +1 10
10.    KFK 9 2 1 6 12 - 24 -12 7
11.    Ýmir 8 1 3 4 9 - 13 -4 6
12.    ÍH 8 1 1 6 18 - 34 -16 4
Athugasemdir
banner
banner
banner