Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvær af þeim bestu í íslenska landsliðsbúningnum
Kvenaboltinn
Samantha Smith og Katie Cousins.
Samantha Smith og Katie Cousins.
Mynd: Skjáskot - Instagram
Katie Cousins, leikmaður Þróttar, birti í gær skemmtilega mynd af sér og Samönthu Smith, leikmanni Breiðabliks, á samfélagsmiðlum.

Á myndinni eru þær báðar í íslensku landsliðstreyjunni og skrifar Katie við myndina í tilefni af þjóðhátíðardeginum: „Til hamingju með afmælið Ísland."

Katie og Sammy, sem eru báðar frá Bandaríkjunum, eru tvær af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar; eru núna keppinautar um Íslandsmeistaratitilinn þar sem Breiðablik, FH og Þróttur eru öll jöfn á toppnum.

Þessi mynd er skemmtileg, en það væri nú gaman að sjá þær tvær spila í íslenska landsliðsbúningnum einn daginn. Þær eru svo sannarlega nógu góðar til að gera tilkall í það ef þær fá ríkisborgararétt á næstu árum. Það er allavega skemmtilegur möguleiki að hugsa um og þessi mynd ýtir undir það.

„Berglind (Rós Ágústsdóttir) og Katie voru frábærar í þessum leik og þær eru frábærar. Þetta er besta miðjan á landinu og væru fínar saman í landsliðinu líka. Það er leitt að Katherine Cousins skuli ekki vera íslensk," sagði fyrrum landsliðskonan Katrín Ómarsdóttir í fyrra en Katie er núna á sínu fjórða tímabili á Íslandi. Allan þann tíma hefur hún verið einn besti leikmaður landsins.

Samantha er á sínu öðru tímabili á Íslandi eftir að hafa slegið hér í gegn í fyrra. Fyrir tímabilið var rætt um það hvort hún væri mögulega of góð fyrir íslenska boltann eftir að hafa hjálpað Breiðabliki að landa Íslandsmeistaratitlinum.
Athugasemdir