Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
   fös 21. apríl 2023 14:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Ég veit það ekki alveg en ég tel að við getum komist nær"
Kvenaboltinn
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar.
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er spenntur að byrja," segir Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, í samtali við Fótbolta.net. Þrótti er spáð fjórða sæti í spá sérfræðinga Fótbolta.net fyrir tímabilið.

Þróttur endaði í fjórða sæti deildarinnar á síðasta leiktíð eftir að hafa verið í Meistaradeildarbaráttu framan af. „Að mestu var ég ánægður. Við áttum slæman kafla en það var gott fyrir okkur að upplifa það og komast í gegnum það."

„Við áttum möguleika fyrir síðustu leikina og það var svekkjandi hvernig þeir fóru. Vonandi getum við tekið næsta skref í ár."

Við getum komist nær
Þróttarar hafa bætt nokkrum leikmönnum við hóp sinn í vetur. Stærst var það að fá Katie Cousins aftur en hún var frábær síðast þegar hún lék hér á landi.

„Mér líður vel með hópinn. Við erum með meiri breidd en áður sem er lykilatriði. Ég er mjög ánægður með leikmennina sem hafa komið inn og ég er spenntur að sjá hvað þær gera," segir Nik.

Getur Þróttur barist um titilinn í ár?

„Ég veit það ekki alveg en ég tel að við getum komist nær. Það er erfitt að segja hvort við getum barist um titilinn en ég vil vera í baráttu um eitthvað undir lok tímabilsins. Mér finnst við vera að komast nær á hverju ári."

Nik telur að deildin verði jöfn og hann er ánægður með nýja fyrirkomulagið en hægt er að sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti
Hin hliðin - Katla Tryggvadóttir (Þróttur)
Læknaneminn í Laugardalnum - „Getur ekki farið af 50 prósent hug í gegnum þetta"
Athugasemdir
banner