| fös 21.apr 2023 14:30 Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir |
|
Læknaneminn í Laugardalnum - „Getur ekki farið af 50 prósent hug í gegnum þetta"
Ingunn Haraldsdóttir er mætt í vörnina hjá Þrótti í Laugardalnum eftir að hafa verið fyrirliði hjá KR undanfarin ár. Ásamt fótboltanum er Ingunn í gríðarlega krefjandi námi sem læknir en hún er núna á fimmta ári í náminu. Ingunn hefur líka sinnt mikilvægu starfi hjá Hagsmunasamtökum knattspyrnukvenna. Hún er spennt fyrir sumrinu og fyrir því að fá vonandi að berjast í toppbaráttunni.
'Þetta hefur aldrei orðið mjög yfirþyrmandi. Það var kannski aðallega fjórða árið í læknisfræðinni þegar maður er mest að byrja að fara inn á spítalann og það er svolítið mikið þá'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Árið 2020 voru sérstaklega mikil vonbrigði. Við vorum með flottan hóp á blaði en það gekk ekkert upp og við féllum'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þegar ég hugsa sem leikmaður er það gott að það sé einhver tilbúin að taka slaginn og vera rödd leikmanna'
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það hefur gengið vel á undirbúningstímabilinu og við erum með háleit markmið fyrir sumarið. Ég er mjög spennt fyrir því."
Er í krefjandi læknisnámi
Ásamt því að spila fótbolta í Bestu deildinni er Ingunn komin langt í læknisnámi. Þegar talið berst að náminu þá spyr undirritaður fyrst hvort að þetta sé ekki gríðarlega erfitt nám. Utan frá þá hugsar maður þannig, að þetta sé gríðarlega flókið og erfitt nám.
„Þú getur ekki farið af 50 prósent hug í gegnum þetta."
„Þetta er góð og stór spurning," segir Ingunn. „Þetta er auðvitað mjög krefjandi, það er alveg ástæða fyrir því að fólk heldur það."
„Núna er ég á fimmta ári en þetta eru sex ár í heildina. Maður þarf að vera viss um að vilja þetta vegna þess að þetta er mikil vinna. Núna er ég í verknámi en þá er maður á daginn upp á spítala og inn á deildum. Þetta er mjög klínískt sem er mjög skemmtilegt en það þýðir líka að maður þarf að nýta vel allan annan tíma í að læra og lesa fyrir fagið. Þetta getur verið svolítið mikið púsluspil þegar maður er á æfingum á kvöldin, að finna tíma til að lesa þegar manni langar helst að kveikja á sjónvarpinu. Þetta er alveg púsl."
„Það taka allir sama grunn, sex ár. Svo eftir það vinnur maður í eitt ár sem kandídat og eftir það getur maður valið sérgrein. Ég er ekki búin að ákveða hvað það er sem ég mun gera varðandi sérnám. Það er margt mjög spennandi. Ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera, maður er alltaf að breyta og kynnast einhverju nýju spennandi," segir Ingunn en hún telur það líklegt að hún muni fara erlendis þegar hún fer í sérnám.
„Þetta er 'dedication' og maður þarf að vera viss um að vilja nýta sér þetta. Svo getur maður gert ýmislegt sem læknir. Þetta er alveg opið en maður þarf að nenna þessu námi. Þú getur ekki farið af 50 prósent hug í gegnum þetta."
Held að það henti mér ekki að vinna við skrifborð
Ingunn segist hafa hugsað um það fyrst að verða læknir þegar hún var lítil stelpa en svo hætti hún við.
„Ég hugsaði þetta þegar ég var lítil stelpa, þá gat ég ímyndað mér að verða læknir, en svo hætti ég eiginlega við. Það var ekki fyrr en eftir menntaskóla að ég ákvað að mig langaði að gera þetta. Það er ekki eins og ég hafi stefnt að þessu samfleytt í 15 ár. Ég var búin að hugsa ýmislegt annað," segir Ingunn.
„Ég hef mjög gaman að stærðfræði og var búin að ímynda mér einhverja verkfræði. Svo var það eiginlega þannig að ég vil vinna með fólki og ég vil vera í samskiptum. Það var það sem heillaði mig mest við læknisfræðina, þessi samskipti við sjúklinga og að hjálpa fólki. Ég held að það henti mér ekki að vinna við skrifborð."
Hún viðurkennir að það geti verið í læknisfræði og í fótbolta á sama tíma, þetta getur verið púsluspil og stundum erfitt.
„Þetta hefur aldrei orðið mjög yfirþyrmandi. Það var kannski aðallega fjórða árið í læknisfræðinni þegar maður er mest að byrja að fara inn á spítalann og það er svolítið mikið þá. Eftir það tók ég mér pásu frá náminu sem ég held að ég haft mjög gott af," segir Ingunn en hún fór þá til Grikklands og spilaði með besta liðinu þar.
„Það var góður tímapunktur fyrir mig. Það var búið að vera mjög mikið að gera í skólanum með fótboltanum. Það var svo eiginlega ekkert mál að byrja aftur. Manni líður eiginlega alltaf þannig eftir sumarfrí að maður sé búinn að gleyma öllu sem maður hefur nokkurn tímann lært. Ég var smá stressuð um að ég væri búin að gleyma öllu en þetta var fljótt að koma. Ég var enn meira mótíveruð að mæta aftur, Ég hafði enn meira gaman að því að byrja aftur í þessu. Ég held að það hafi gert mér mjög gott að taka mér smá pásu."
Sér fyrir að þurfa að velja á milli
Ingunn er núna í verknámi og það styttist í að hún klári námið.
„Ég þarf að velja á milli þegar ég er komin á þetta kandídatsár."
„Fyrstu þrjú árin eru mjög bókleg, frumulífeðlisfræði og ýmislegt sem getur tekið svolítið á. Mér finnst það rosalega skemmtilegt að vera að gera það sem maður er að fara að vinna við. Að sjá sjúkdómana ekki bara í bókinni er mikill munur," segir Ingunn en hún sér fyrir að þurfa á velja á milli fótboltans og vinnu á næstu árum.
„Þegar ég er að sækja um vinnu þá hef ég þurft að hugsa út í það að ég sé ekki í vaktavinnu. Það hefur spilað inn í. Ég sé alveg að ég verði einhvern tímann að velja á milli. Þetta hefur gengið hingað til en ég þarf að velja á milli þegar ég er komin á þetta kandídatsár sem kemur eftir þessi sex ár. Þá er ég í það mikilli vaktavinnu að ég held að það sé erfitt að halda áfram í efstu deild í fótboltanum út af því. Ég er alveg raunsæ með það en þá kann ég að meta tímann sem ég hef núna enn betur, að vera á fullu í fótboltanum."
Ingunn er núna kominn í efri hlutann í Bestu deildinni eftir að hafa spilað með KR og HK/Víkingi síðustu ár.
„Núna er ég komin í efri hlutann og það er munur á því. Það er mikill metnaður í Laugardalnum og allur Laugardalurinn er á bak við þetta lið. Maður finnur það alveg. Það er mjög verðmætt fyrir okkur að finna það," segir varnarmaðurinn öflugi.
Ég er spennt fyrir því að prófa það
Ingunn er uppalin í Val en hún fór svo í HK/Víking þar sem hún fór í mikilvægt hlutverk.
„Ég fékk lítið að spila í Val og fór í HK/Víking. Við vorum í toppbaráttu í 1. deild og það var svekkjandi að komast ekki upp þarna tvö ár í röð. Það var ótrúlega góður tími og ég þroskaðist mikið sem leikmaður þar. Ég var leiðtogi í liðinu og tók mikla ábyrgð. Svo fann ég að ég vildi taka skrefið upp í efstu deild," segir Ingunn en hún fór eftir það í KR.
„Það var Edda Garðars sem fékk mig yfir í KR. Á þeim tíma voru mjög spennandi hlutir í gangi í KR. Katrín Ómars var að koma heim, Ólína kom og Fríða líka. Svo einhvern veginn var alltaf mikil von á vorin en það gekk ekkert sérstaklega vel á sumrin. Ég þroskaðist mikið þar líka en það voru vonbrigði þar sem við ætluðum okkur alltaf stærri hluti. Árið 2020 voru sérstaklega mikil vonbrigði. Við vorum með flottan hóp á blaði en það gekk ekkert upp og við féllum."
Hún segir það frískandi að koma í Þrótt. „Það er mjög frískandi að koma og vera með markmið um að vera í efri hlutanum og vera ekki í botnbaráttu. Ég er spennt fyrir því að prófa það."
Edda Garðarsdóttir, sem fékk Ingunni í KR á sínum tíma, er í þjálfarateyminu í Þrótti.
„Það er mjög gaman að hitta Eddu Garðars aftur. Það vó mikið í minni ákvörðun að koma í Þrótt núna. Hún þjálfaði mig fyrst í Val og svo í KR. Núna er hún hluti af ástæðunni fyrir því að ég er komin í Þrótt. Hún er frábær þjálfari og frábær karakter. Þau smella mjög vel saman finnst mér, hún og Nik (Chamberlain). Ég er mjög ánægð með Nik, hann er mjög ástríðufullur fyrir því sem hann er að gera og er með mjög skýra sýn á það hvernig hann vill gera hlutina. Hann er metnaðarfullur og er að ná því besta út úr leikmönnum sínum. Það er spennandi að vera í liðinu hans."
Ingunn spilaði ekkert í fyrra vegna meiðsla en hún er búin að ná sér af þeim. „Ég sleit hásin í febrúar og ég ákvað að drífa mig ekki til baka. Ég hefði mögulega getað náð einhverju í lok tímabils en ég ákvað að vera ekki í kappi við tímann. Ég byrjaði að æfa á fullu í byrjun nóvember með Þrótti og það hefur gengið vel. Það gekk brösulega fyrst reyndar, það tók tíma að koma sér aftur af stað. Það hefur gengið vel eftir jól en það tók tíma að treysta fætinum aftur. Mér líður vel núna," segir varnarmaðurinn.
Hvar á maður að byrja?
Ingunn var líka í stjórn hjá Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna í fyrra og er hún mjög ástríðufull fyrir réttindabaráttu kvenna í fótboltanum.
„Þetta er ekki eitthvað sem við breytum á einum degi."
„Ég var í stjórn fyrsta árið. Ég dró mig síðan út úr stjórn núna og vinkona mín Rebekka Sverris kom inn í staðinn. Ég er auðvitað enn eitthvað viðloðandi þetta og ég fylgist vel með," segir Ingunn en hversu mikilvæg eru þessi samtök?
„Þegar ég hugsa sem leikmaður er það gott að það sé einhver tilbúin að taka slaginn og vera rödd leikmanna. Eins og við sjáum síðustu vikur, þessi atriði sem eru að koma upp, þá er svo dýrmætt fyrir leikmenn að vera með samtök sem eru alltaf að pota, benda á hluti og stuðla að viðhorfsbreytingum. Það er ótrúlega mikilvægt."
ÍTF (Íslenskur toppfótbolti), hagsmunasamtök félaga í efstu deildum, hafa verið harðlega gagnrýnd að undanförnu.
Fyrir tímabilið var mikil umræða vegna kynjakvótans í auglýsingu fyrir Bestu deildina. Þar voru leikmenn úr karladeildinni í miklum meirihluta. Ofan á það var tilkynnt að aðeins yrði Fantasy-leikur fyrir karladeildina þar sem gögnin voru ekki í boði fyrir kvennadeildina. Svo voru fleiri atriði ofan á það.
„Hvar á maður að byrja? Þetta er búið að vera röð óheppilegra atvika og það eru alltaf einhverjar afsakanir og ástæður fyrir þeim," segir Ingunn.
„Stóra málið er að þetta kristallast í því að við þurfum að breyta viðhorfinu hjá svo mörgum. Þetta er ekki eitthvað sem við breytum á einum degi. Við þurfum stöðugt að vera að pota í fólk og minna fólk á, jafnvel að fá fleira nýtt fólk inn sem er ekki gegnsýrt af þessum vondu viðhorfum."
„Það er sorglegt að staðan sé svona 2023, algjörlega. ÍTF eru hagsmunasamtök félaganna og það er félaganna að spá aðeins í það hverjir eru fulltrúar félaganna og hvernig það er gert. Félögin geta ákveðið að forystan sé svona eða ekki. Ég myndi vilja leggja það í hendurnar á félögunum að skoða þetta aðeins. Þetta er búið að vera mjög undarlegt og alltaf einhverjar afsakanir."
Að lokum sagði Ingunn: „Ég er mjög spennt fyrir sumrinu og ég get eiginlega ekki beðið." Þróttur hefur leik á miðvikudaginn gegn FH og verður fróðlegt að sjá hvernig sá leikur fer.
Sjá einnig:
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu kvenna: 4. sæti
Hin hliðin - Katla Tryggvadóttir (Þróttur)
Athugasemdir


