Manchester City varð Englandsmeistari þriðja árið í röð í gær eftir að Arsenal tapaði fyrir Nottingham Forest á City Ground en Ian Wright og sonur hans, Shaun Wright-Phillips voru báðir í setti á BBC.
Wright er mikill Arsenal-maður og spilaði með liðinu á tíunda áratugnum.
Hann á tvo syni, þá Bradley og Shaun-Wright Phillips, en sá síðarnefndi spilaði meðal annars með Manchester City.
Þeir tveir hafa verið að skjóta á hvorn annan þegar það kemur að titilbaráttunni en sá hlær best sem síðast hlær og var það Shaun í þetta sinn.
Hann mætti í settið á BBC með bikarinn sjálfan og var Ian ekkert ýkja hrifinn af því.
„Þetta er ekki fyndið!“ sagði Ian þegar sonurinn mætti í settið en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Shaun Wright-Phillips did Ian Wright so dirty after Arsenal lost and Manchester City won the title ????
— Optus Sport (@OptusSport) May 20, 2023
'It's not funny... It's too close.' ????#OptusSport pic.twitter.com/cRJVpNZSc4
Athugasemdir