Carrick gæti stýrt æfingu Man Utd á miðvikudag - Everton vill White frá Arsenal - Dortmund fylgist með Bobb
banner
   þri 23. desember 2025 09:42
Elvar Geir Magnússon
Slot: Þetta var glæfraleg tækling hja Van de Ven
Mynd: EPA
Sænski framherjinn Alexander Isak verður frá næstu mánuði eftir að hafa fótbrotnað í 2-1 sigri Liverpool á Tottenham um helgina. Isak skoraði annað deildarmark sitt með Liverpool síðan hann kom frá Newcastle United fyrir metfé rétt fyrir gluggalok.

Florian Wirtz lagði boltann inn á Isak sem setti boltann í netið, en hollenski miðvörðurinn Micky van de Ven fór í harkalega tæklingu í Isak sem fótbrotnaði í kjölfarið og var skipt af velli.

„Hann verður frá næstu mánuði. Þessi tækling Van de Ven var glæfraleg," sagði Slot á fréttamannafundi í morgun en umræða er um hvort hollenski varnarmaðurinn hefði átt skilið að sjá rautt.

Liverpool mætir Úlfunum á laugardaginn klukkan 15:00. Slot fór yfir stöðuna á leikmannahópnum á fréttamannafundinum.

Jeremie Frimpong er klár í að byrja, Conor Bradley er tæpur fyrir leikinn en Florian Wirtz er í fínu lagi eftir að hafa komið út af með krampa í sigrinum gegn Tottenham.


Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 21 15 4 2 40 14 +26 49
2 Man City 21 13 4 4 45 19 +26 43
3 Aston Villa 21 13 4 4 33 24 +9 43
4 Liverpool 21 10 5 6 32 28 +4 35
5 Brentford 21 10 3 8 35 28 +7 33
6 Newcastle 21 9 5 7 32 27 +5 32
7 Man Utd 21 8 8 5 36 32 +4 32
8 Chelsea 21 8 7 6 34 24 +10 31
9 Fulham 21 9 4 8 30 30 0 31
10 Sunderland 21 7 9 5 21 22 -1 30
11 Brighton 21 7 8 6 31 28 +3 29
12 Everton 21 8 5 8 23 25 -2 29
13 Crystal Palace 21 7 7 7 22 23 -1 28
14 Tottenham 21 7 6 8 30 27 +3 27
15 Bournemouth 21 6 8 7 34 40 -6 26
16 Leeds 21 5 7 9 29 37 -8 22
17 Nott. Forest 21 6 3 12 21 34 -13 21
18 West Ham 21 3 5 13 22 43 -21 14
19 Burnley 21 3 4 14 22 41 -19 13
20 Wolves 21 1 4 16 15 41 -26 7
Athugasemdir
banner
banner