Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   mán 13. apríl 2026 20:19
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Lisandro Martínez fékk beint rautt
Paul Tierney með rauða spjaldið.
Paul Tierney með rauða spjaldið.
Mynd: EPA
Manchester United tók á móti Leeds United í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og áttu Rauðu djöflarnir slakan fyrri hálfleik.

Noah Okafor skoraði tvö mörk fyrir Leeds svo staðan var 0-2 í leikhlé. Benjamin Sesko komst í gott færi í upphafi síðari hálfleiks og björguðu gestirnir frá Leeds á marklínu, en tíu mínútum síðar lét Lisandro Martínez reka sig af velli með beint rautt spjald.

Martínez fór upp í skallabolta á miðjum vellinum með Dominic Calvert-Lewin og á leið sinni aftur á jörðina kippti hann í snúðinn í hári Calvert-Lewin.

Eftir athugun í VAR-herberginu var Paul Tierney dómari sendur í skjáinn og komst hann að sömu niðurstöðu og kollegar sínir. Beint rautt spjald.

Sjáðu atvikið

   13.04.2026 20:01
Baulað á Man Utd í hálfleik á Old Trafford

Slapp
banner
banner