Openda er aðeins búinn að skora 2 mörk í 36 leikjum og virðist ekki vera í áformum Luciano Spalletti þjálfara.
Juventus neyðist til að kaupa sóknarmanninn Loïs Openda úr röðum RB Leipzig eftir að liðið tryggði sér sæti meðal tíu efstu liða Serie A deildarinnar.
Juve fékk Openda á láni á upphafi tímabils með kaupákvæði sem virkjaðist sjálfkrafa ef liðið myndi enda í efstu tíu sætum deildarinnar. Upphaflega var talið að ákvæðið myndi aðeins virkjast ef Juventus næði meistaradeildarsæti, en svo er ekki.
Ítalska félagið greiðir 40 milljónir evra til að kaupa Openda eftir að hafa borgað 4 milljónir til að fá hann lánaðan. Þá geta tvær milljónir bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur.
Openda er 26 ára gamall og kom að 59 mörkum í 93 leikjum á dvöl sinni hjá Leipzig. Hann er með 3 mörk í 33 landsleikjum með Belgíu.
Hann er ekki í áformum Luciani Spalletti þjálfara og mun Juve því reyna að selja hann í sumar.


