Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, sækir innblástur til körfuboltagoðsagnarinnar LeBron James fyrir seinni leikinn gegn Atletico Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Börsungar töpuðu fyrri leiknum 0-2 á heimavelli en eru samt kokhraustir fyrir seinni leikinn sem verður á hinum stórglæsilega Metropolitano leikvangi í Madrídarborg á morgun.
Börsungar töpuðu fyrri leiknum 0-2 á heimavelli en eru samt kokhraustir fyrir seinni leikinn sem verður á hinum stórglæsilega Metropolitano leikvangi í Madrídarborg á morgun.
Samsett mynd af Yamal og liðsfélögum hans í Barcelona þar sem þeir eru með sömu sólgleraugu og LeBron var með fyrir endurkomu Cleveland Cavaliers gegn Golden State Warriors í úrslitum NBA 2016 hefur farið eins og eldur um sinu um netheima. Cleveland varð meistari eftir að hafa lent 0-3 undir.
Yamal var ánægður með samlíkinguna og setti mynd af LeBron James með meistarabikarinn sem aðalmynd á Instagram hjá sér.
„Hann er einn af þeim sem geta veitt okkur innblástur á morgun, þess vegna setti ég hann sem prófílmynd. Ég mun hugsa um það sem hann gerði og vonast til að leika það eftir. En ég er bara einn af liðinu, við erum ein heild," segir Yamal.
Það er mikil ábyrgð á herðum Yamal sem er einn besti fótboltamaður heims þrátt fyrir að vera aðeins átján ára gamall.
„Ég hef verið svo heppinn að fá mikla ábyrgð frá því ég var lítill, ég hugsa ekki um það sem vandamál. Ábyrgðin sem ég fæ frá liðsfélögum er þyngdar sinnar virði í gulli. Við erum með marga leikmenn sem geta tekið málin í síunar hendur og breytt hlutunum. Ég hef mikla trú á liðinu."
Þess má svo geta að Hansi Flick, stjóri Barcelona, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong væri tilbúinn að byrja leikinn annað kvöld en hann hefur verið á meiðslalistanum.
????? Lamine Yamal: "LeBron James es un referente que me puede inspirar para mañana. Pensaré en cómo lo hizo él y ojalá que me salga igual" pic.twitter.com/XiNi8xDjn1
— Mundo Deportivo (@mundodeportivo) April 13, 2026


