Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 21:59
Ívan Guðjón Baldursson
Calvert-Lewin erfir þetta ekki við Martínez
Mynd: EPA
Dominic Calvert-Lewin var í byrjunarliði Leeds United í fræknum sigri gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld.

Honum tókst ekki að skora en Lisandro Martínez, varnarmaður Man Utd, fékk að líta beint rautt spjald þegar hann reif í hársnúðinn aftan á hnakka Calvert-Lewin í skallaeinvígi.

Martínez var að lenda aftur til jarðar þegar hann togaði í hárið á Calvert-Lewin sem tilkynnti það strax til dómara.

„Þetta eru risastór úrslit fyrir okkur. Við komum hingað til að sigra og erum hæstánægðir að fara heim með þrjú stig," sagði Calvert-Lewin eftir lokaflautið en Leeds er núna sex stigum frá fallsvæðinu þegar sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

„Ég sem ekki reglurnar. Ég fann að það var togað í hárið á mér og lét dómarann vita. Hann tekur ákvarðanirnar. Þetta er svekkjandi fyrir hann (Martínez) hvort sem þetta var viljaverk eða ekki. Ég erfi þetta ekki við hann."

   13.04.2026 20:19
Sjáðu atvikið: Lisandro Martínez fékk beint rautt


Calvert-Lewin tókst ekki að skora í leiknum þrátt fyrir góð færi en hann bjargaði þó á marklínu sem reyndist afar mikilvægt, enda urðu lokatölur leiksins 1-2.

„Ég var bara að sinna vinnunni minni, sem betur fer var ég á réttum stað til að bjarga þessum bolta frá því að fara í netið. Vonandi bætti ég upp fyrir færin sem ég klúðraði með þessari björgun."
Slapp
banner