Andri Júlíusson hætti í vetur störfum hjá ÍA eftir að hafa þjálfað þar yngri flokka síðustu ár. Hann hefur jafnframt þjálfað Kára, venslafélag ÍA, sem spilar í 2. deild karla, og gengið í mörg störf fyrir félagið í gegnum tíðina.
Andri skrifar í dag pistil á Fésbókarsíðu sinni þar sem hann fjallar um hvað varð til þess að hann yfirgaf félagið.
Andri skrifar í dag pistil á Fésbókarsíðu sinni þar sem hann fjallar um hvað varð til þess að hann yfirgaf félagið.
„ÍA hjartað brotið," skrifar Andri og heldur áfram.
„Fyrir rúmlega mánuði síðan gerði ég mistök á 5. flokks æfingu, það kom upp leiðinlegt atvik þar sem drengur meiddi annan og ég átti óvart þátt í því. Ég brást strax við og talaði við báða drengina og allir skildu sáttir að lokum, ég bauðst til að hringja í foreldra en yfirþjálfarinn tók það."
„Ég var gamall sem leikmaður en ungur sem þjálfari. Þetta atvik sat í mér í nokkra daga en eftir viku kom skellurinn. Þrátt fyrir að hafa náð sáttum við drenginn og faðir drengsins var ég boðaður á fund af stjórn ÍA. Formaður barna- og unglingaráðs vildi mig greinilega út úr klúbbnum. Allir sem ég talaði við, meðþjálfarar í klúbbnum, foreldrar og framkvæmdastjórar ÍA og KFÍA voru á minni hlið enda vita þeir hvaða hluti ég gerði fyrir klúbbinn sem ég elska. En einhverjir sem sitja á skrifstofu og hafa aldrei sparkað í bolta vildu mig í burtu. Svo fór að ég sagði af mér sem þjálfari hjá ÍA og Kára (afreksþjálfun, 8. flokk, 6. flokk. 5. flokk 2. flokk og Kára)."
Andra segist hafa verið kastað út úr félaginu.
„Eftir að hafa verið alla yngri flokka, (Íslandsmeistari, bikarmeistari), leikmaður (192 leikir, 73 mörk, í liði sem hefur náð bestum árangri í deild síðan 2003), þjálfari (bikarmeistari tvö ár í röð), gengið í mögulega öll störf innan klúbbsins, allt frá því að mála völlinn, græja búninga, aðstoðaþjálfari, hengja upp fána og fleira, eiginlega allt nema vera aðalþjálfari ÍA liðsins. Pabbi spilaði fyrir ÍA og bróðir minn líka ásamt því að hafa þjálfað, öll börnin mín eru í ÍA og elskuðu það, var mér kastað eins og hverri annarri kúkableyju og er vissulega ÍA hjartað mitt og fjölskyldu minnar mölbrotið," skrifar Andri.
Þegar einum dyrum er skellt, þá opnast vonandi aðrar
Andri segir að núna muni vonandi aðrar dyr opnast en hann stefnir á að klára hringinn á Skaganum einn daginn.
„Ástríða mín hefur verið fyrir ungum leikmönnum sem við höfum verið að móta og sjá þroskast og vonast eftir því að þeir fái að spila með aðalliði félagsins, að búa til unga Skagamenn sem feta í fótspor Skagamanna eins og Arnórs Smára, Ísaks Bergmanns, Hákonar Haralds, Stefáns Teits og Arnórs Sig. Þannig klúbbur höfum við verið og þannig klúbbur eigum við að vera," segir Andri og bætir við í lokin.
„Þegar einum dyrum er skellt í bakið á manni, opnast vonandi aðrar og ég fæ tækifæri að búa til annan Ísak eða Hákon annars staðar. Þegar önnur stjórn stýrir ÍA mun ég koma til baka og klára hringinn og þjálfa aðallið ÍA og uppfylla drauminn."




