Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   mán 13. apríl 2026 20:01
Elvar Geir Magnússon
Baulað á Man Utd í hálfleik á Old Trafford
Noah Okafor skoraði bæði mörk fyrri hálfleiks.
Noah Okafor skoraði bæði mörk fyrri hálfleiks.
Mynd: EPA
Leeds United er 2-0 yfir í hálfleik gegn Manchester United í hálfleik í síðasta leik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Leeds hefur verið mun betra liðið í leiknum og stuðningsmenn liðsins geta verið hundsvekktir yfir því að hafa ekki náð inn þriðja markinu áður en flautað var til hálfleiks. Lisandro Martínez kom í veg fyrir þriðja mark Leeds.

Noah Okafor skoraði bæði mörk fyrri hálfleiks, braut ísinn á fimmtu mínútu og skoraði svo aftur eftir tæpan hálftíma.

Stuðningsmenn Manchester United bauluðu á lið sitt þegar það gekk til búningsklefa á Old Trafford í hálfleik.

„Þetta er ný staða fyrir Michael Carrick bráðabirgðastjóra Man United. Þetta er í fyrsta sinn sem liðið er tveimur mörkum undir síðan hann kom og tók við af Rúben Amorim," segir Simon Stone íþróttafréttamaður BBC.

„Þetta hefur verið virkilega lélegt hjá heimamönnum. Frammistaðan hefur verið sjokkerandi slök."

Leeds hefur átt tíu marktilraunir gegn sex hjá heimamönnum og er með 2 í xG meðan Man Utd er með 0,2.
Slapp
banner