Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 25. janúar 2026 16:20
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Dramatísk endurkoma Genoa - Auðvelt hjá Atalanta
Mikael Egill og hans menn í Genoa unnu eftir dramatíska endurkomu
Mikael Egill og hans menn í Genoa unnu eftir dramatíska endurkomu
Mynd: EPA
Raspadori skoraði í sigri Atalanta
Raspadori skoraði í sigri Atalanta
Mynd: EPA
Mikael Egill Ellertsson og félagar hans í Genoa unnu dramatískan 3-2 endurkomusigur á Bologna í Seríu A á Ítalíu í dag.

Útlitið var ekki gott hjá Genoa eftir 47 mínútna leik. Skotinn Lewis Ferguson skoraði á 35. mínútu og gerði Sebastian Otoa sjálfsmark snemma í þeim síðari.

Það fór þó að birta til hjá heimamönnum. Lukasz Skorupski, markvörður Bologna, sá rauða spjaldið á 57. mínútu er hann hljóp langt út úr markinu, missti stjórn á boltanum og fór í ljóta tæklingu.

Genoa nýtti sér liðsmuninn. Úkraínumaðurinn Ruslan Malinovskyi minnkaði muninn á 62. mínútu með þrumufleyg úr aukaspyrnu áður en Caleb Ekuban jafnaði metin sextán mínútum síðar.

Í byrjun uppbótartímans kom síðan sigurmark Genoa sem Brasilíumaðurinn Junior Messias gerði eftir aðra stoðsendingu Alessandro Marcandalli í leiknum.

Mikael Egill lék allan leikinn hjá Genoa sem er í 13. sæti með 23 stig en Bologna í 8. sæti með 30 stig.

Atalanta valtaði yfir Parma, 4-0. Gianluca Scamacca skoraði úr víti á 15. mínútu og bætti Hollendingurinn Marten de Roon við öðru níu mínútum síðar.

Giacomo Raspadori og Nikola Krstovic gerðu síðan tvö mörk á síðustu tuttugu mínútunum til að gulltryggja sigurinn. Atalanta er í 7. sæti með 35 stig en Parma í 15. sæti með 23 stig.

Genoa 3 - 2 Bologna
0-1 Lewis Ferguson ('35 )
0-2 Sebastian Otoa ('47 , sjálfsmark)
1-2 Ruslan Malinovskyi ('62 )
2-2 Caleb Ekuban ('78 )
3-2 Junior Messias ('90 )
Rautt spjald: Lukasz Skorupski, Bologna ('57)

Atalanta 4 - 0 Parma
1-0 Gianluca Scamacca ('15 , víti)
2-0 Marten de Roon ('24 )
3-0 Giacomo Raspadori ('73 )
4-0 Nikola Krstovic ('90 )

Sassuolo 1 - 0 Cremonese
1-0 Alieu Fadera ('3 )


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 25 20 1 4 60 21 +39 61
2 Milan 24 15 8 1 40 18 +22 53
3 Napoli 25 15 5 5 38 25 +13 50
4 Roma 25 15 2 8 31 16 +15 47
5 Juventus 25 13 7 5 43 23 +20 46
6 Atalanta 25 11 9 5 34 21 +13 42
7 Como 24 11 8 5 38 18 +20 41
8 Bologna 25 9 6 10 34 32 +2 33
9 Lazio 25 8 9 8 26 25 +1 33
10 Sassuolo 25 9 5 11 29 35 -6 32
11 Udinese 25 9 5 11 28 38 -10 32
12 Parma 25 7 8 10 18 31 -13 29
13 Cagliari 24 7 7 10 28 33 -5 28
14 Torino 25 7 6 12 25 44 -19 27
15 Genoa 25 5 9 11 29 37 -8 24
16 Cremonese 25 5 9 11 21 33 -12 24
17 Fiorentina 25 4 9 12 29 39 -10 21
18 Lecce 24 5 6 13 15 31 -16 21
19 Pisa 25 1 12 12 20 42 -22 15
20 Verona 25 2 9 14 19 43 -24 15
Athugasemdir
banner
banner