Leao ekki til sölu
Igli Tare, nýr yfirmaður fótboltamála hjá AC Milan, var spurður út í framtíð nokkurra leikmanna félagsins sem hafa verið orðaðir við brottflutning frá Mílanó.
Hann var spurður út í markmanninn Mike Maignan og bakvörðinn Theo Hernández sem renna báðir út á samningi næsta sumar, auk Rafael Leao sem hefur verið orðaður við FC Bayern.
Chelsea reyndi að kaupa Maignan fyrr í sumar og þá er Al-Hilal að reyna að klófesta Hernández, á meðan FC Bayern hefur verið orðað við Leao sem á þó þrjú ár eftir af samningi.
„Mike verður áfram með okkur á næstu leiktíð. Það var áhugi frá ensku úrvalsdeildarfélagi en við komumst ekki að samkomulagi og ákváðum að halda Mike að lokum. Við viljum halda Mike í sumar en það er aldrei að vita hvað gerist á leikmannamarkaðinum.
„Theo vill reyna fyrir sér hjá nýju félagi og við erum að vinna í lausn fyrir hann. Við erum í viðræðum en það hefur ekkert verið ákveðið ennþá.
„Leao er topp leikmaður sem sinnir lykilhlutverki fyrir okkur. Hann er gífurlega mikilvægur hlekkur í framtíð félagsins og því ekki til sölu. Við höfum ekkert heyrt í Bayern, þetta er bara orðrómur búinn til af fjölmiðlum."
Til gamans má geta að Maignan og Hernández eru góðir vinir og eru einnig liðsfélagar í ógnarsterku landsliði Frakklands.
Athugasemdir