Enskir fjölmiðlar greina frá því að brasilíski varnarmaðurinn Igor Julio er á förum frá Brighton.
Igor er búinn að ná samkomulagi við spænska félagið Real Sociedad um samningsmál og verður þar liðsfélagi Orra Steins Óskarssonar.
Sociedad er í viðræðum við Brighton um kaupverð, en Igor er 27 ára gamall og leikur sem miðvörður að upplagi. Hann getur einnig spilað í vinstri bakverði.
Brighton keypti Igor fyrir rúmlega 15 milljónir evra fyrir tveimur árum síðan. Hann kom við sögu í 33 leikjum á sínu fyrsta tímabili á Englandi en fékk aðeins að taka þátt í 16 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er ekki partur af áformum Fabian Hürzeler þjálfara.
Talið er að Brighton sé reiðubúið til að selja Igor fyrir sama verð og hann var keyptur fyrir. Leikmaðurinn er með tvö ár eftir af samningi sínum við félagið, með möguleika á auka ári.
Athugasemdir