Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 12:00
Alexander Mar Sigurðsson
Baldvin Borgars hættur með Árbæ eða bara í verkfalli?
Baldvin Már Borgarsson.
Baldvin Már Borgarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rætt var um það í Betkastinu í gær að Baldvin Már Borgarsson væri mögulega hættur sem þjálfari Árbæjar í 3. deild. Baldvin hefur ekki stýrt liðinu eftir að hann kom úr leikbanni.

Í þættinum var 9. umferð 2. og 3. deildar gerð upp ásamt 7. umferð 4. deildar. Í lok þáttar var svo tippað á fyrstu umferð í Fótbolti.net bikarnum. Gestir þáttarins voru þeir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Kristinn Hjartarson, þjálfari KÁ í 4. deild.

„Ég held að hann sé bara hættur, ég veit það ekki, vona ég fái skilaboð á mig eftir þátt frá Badda og hann segir að hann sé alls ekki hættur og lætur mig heyra það," sagði Kristinn í þættinum þegar rætt var um Baldvin.

„Miðað við það sem maður heyrir, þá hefur hann ekki verið að mæta á æfingar, eitthvað launavesen í gangi."

Baldvin segir við Fótbolta.net að hann eigi inni laun hjá félaginu og það sé ágætlega há upphæð. Hann tjáði formanni Árbæjar að hann ætlaði ekki að mæta aftur til starfa fyrr en hann fengi allavega 60 prósent af þeirri upphæð sem félagið skuldaði sér. Í kjölfarið hafa engin samskipti átt sér stað á milli Baldvins og félagsins.

Það er því ekki ljóst hvort Baldvin sé hættur eða einfaldlega í verkfalli.

Árbær er sem stendur í 4. sæti 3. deildar með 14 stig úr níu leikjum.

Þáttinn má nálgast í spilaranum efst, í öllum hlaðvarpsveitum og á Spotify.
Þjálfarar sem vita nákvæmlega hvað Ástríðan snýst um!
Athugasemdir
banner