Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 13:38
Elvar Geir Magnússon
Breiðablik og Valur fá erfiða mótherja í Evrópu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dregið hefur verið í forkeppni Meistaradeildar kvenna en Íslandsmeistarar Breiðabliks og bikarmeistarar Vals voru í pottinum og koma inn í 2. umferð.

Bæði lið fá erfiða mótherja en Breiðablik þarf fyrst að vinna sigurvegara riðils úr 1. umferð og svo væntanlega að leggja hollensku meistarana í Twente til að komast í 3. umferðina.

Þau lið sem eru í umræddum riðli og koma þar með til greina sem mótherji Breiðabliks eru Cardiff City frá Wales, Athlone Town frá Írlandi og Agram frá Króatíu.

Takist Breiðabliki að vinna þá viðureign mætir liðið svo Twente frá Hollandi eða Rauðu Stjörnunni frá Serbíu. Amanda Andradóttir leikur með Twente en liðið vann Val auðveldlega í Evrópuviðureign í fyrra.

Valur mætir Sporting Braga
Valur mætir Sporting Braga frá Portúgal í undanúrslitum 2. umferðar. Í seinni leiknum verður svo Inter Milan frá Ítalíu eða Brann frá Noregi andstæðingur Vals í baráttunni um að komast í 3. umferðina.

Leik­irn­ir í 2. um­ferð fara fram 27. og 30. ág­úst og verður hver riðill leik­inn á heima­velli ein­hvers af liðunum fjór­um. Þau lið sem tapa í undanúrslitum 2. umferðar tækifæri til að komast í nýja Evrópudeild sem hefst í haust.
Athugasemdir
banner