Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jonny Evans fær nýtt hlutverk hjá Man Utd
Jonny Evans.
Jonny Evans.
Mynd: EPA
Manchester United er að ráða Jonny Evans, fyrrum varnarmann liðsins, í starf hjá félaginu.

Evans lagði skóna á hilluna eftir síðustu leiktíð en hann kláraði feril sinn með Man Utd.

Evans, sem er 37 ára gamall, spilaði þrettán leiki í öllum keppnum með United á tímabilinu en þetta var annað tímabil eftir endurkomu til félagsins.

Hann lék með 198 leiki og skoraði sjö mörk með liðinu frá 2007 til 2015 þar sem hann vann sjö titla. Hann sneri svo aftur árið 2023 eftir að hafa spilað með West Brom og Leicester í millitíðinni.

Evans er núna að fara inn í hlutverk hjá Man Utd þar sem hann mun aðstoða yngri leikmenn félagsins sem fara á láni. Mun hann aðstoða leikmennina við að velja rétt lið og styðja við leikmenn á meðan þeir eru í burtu.
Athugasemdir
banner
banner