Ilkay Gundogan hefur verið orðaður við Galatasaray en franski miðillinn L'Equipe segir að hann sé búinn að ná samkomulagi við tyrkneska félagið.
Gundogan segist hins vegar vera mjög ánægður hjá Man City og vill spila áfram á stærsta sviðinu.
„Ég á eitt ár eftir af samningnum og er mjög ánægður hérna. Ég trúi því að ég eigi ennþá nokkur ár eftir á stærsta sviðinu með því að hugsa vel um mig. Ég sannaði það á síðasta tímabili þar sem ég missti ekki af neinum leik," sagði Gundogan.
Pep Guardiola var einnig spurður út í þennan 34 ára gamla miðjumann.
„Engar fréttir eru góðar fréttir. Ég veit ekkert, ég hef ekki rætt við hann. Ef hann verður ekki hluti af hópnum væri hann ekki hérna. Á sama tíma erum við með stórann hóp akkúrat núna, of marga leikmenn. Við getum ekki farið inn í næsta tímabil með 26 eða 27 leikmenn," sagði Guardiola.
Athugasemdir