Fótbolti.net bikarinn, bikarkeppni neðri deilda, fer í gang í kvöld. Fyrsti leikurinn í ár verður flautaður á klukkan 18:00 á Sauðárkróki. 32-liða úrslitum keppninnar lýkur síðan á miðvikudagskvöld.
Þetta er þriðja árið sem keppnin er haldin en Víðir vann fyrstu keppnina og varð síðan Selfoss meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli.
Þetta er þriðja árið sem keppnin er haldin en Víðir vann fyrstu keppnina og varð síðan Selfoss meistari á síðasta ári eftir að hafa unnið KFA 3-1 á Laugardalsvelli.
Í Betkastinu í gær giskuðu Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Kristinn Hjartarson, þjálfari KÁ í 4. deild, á úrslitin í leikjunum sem eru framundan í fyrstu umferð keppninnar.
þriðjudagur 24. júní
18:00 Tindastóll-Árborg (Sauðárkróksvöllur)
Báðir spá sigri Tindastóls
19:15 Ýmir-KH (Kórinn)
Óskar spáir sigri Ýmis en Kristinn spáir KH sigri
19:15 KFA-Augnablik (SÚN-völlurinn)
Báðir spá sigri KFA
19:15 Reynir S.-Hafnir (Brons völlurinn)
Báðir spá sigri Reynis
19:15 Hamar-Kári (Grýluvöllur)
Báðir spá sigri Kára
miðvikudagur 25. júní
16:45 Höttur/Huginn-KÁ (Fellavöllur)
Óskar spáir sigri Hattar/Hugins
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
Báðir spá sigri KF
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
Óskar spáir Gróttu sigri en Kristinn spáir Dalvík/Reyni sigri
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)
Báðir spá KFS sigri
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)
Báðir spá Þrótti Vogum sigri
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
Óskar spáir jafntefli og Kristinn spáir Magna sigri
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
Kristinn spáir Sindra sigri og Óskar spáir Árbæ sigri
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
Kristinn spáir Haukum sigri en Óskar spáir Ægi sigri
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
Óskar spáir jafntefli og Kristinn spáir KV sigri
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
Báðir spá Víkingi Ólafsvík sigri
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)
Óskar spáir KFG sigri og Kristinn spáir Víði sigri
Til félaga sem taka þátt í keppninni:
Ef félög eru til í að hjálpa okkur við að auka umgjörð um keppnina þá er allt efni velkomið. Ef félögin eru með myndir, viðtöl, upplýsingar, samfélagsmiðlaefni, beinar netútsendingar sem hægt er að kynna eða eitthvað fleira þá er tölvupósturinn opinn: [email protected] - Einnig er hægt að senda okkur ábendingar eða hugmyndir.
Athugasemdir