þri 24. júní 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Inter Miami mætir PSG
Mynd: EPA
Inter Miami er komið áfram í 16-liða úrslit á HM félagsliða en liðið nældi aðeins í einn sigur í riðlakeppninni og það var gegn Porto.

Keppni í A-riðli lauk í nótt þar sem toppliðin Palmeiras og Inter Miami mættust meðal annars.

Luis Suarez skoraði og lagði upp fyrir Inter sem náði tveggja marka forystu en Palmeiras skoraði tvö mörk undir lok leiksins og tryggði sér þar með toppsætið.

Það var fjör í leik Porto og Al Ahly en liðin skiptust á að vera með forystuna. Wessam Abou Ali skoraði þrennu fyrir Al Ahly en það var Pepe sem tryggði Porto stig þegar hann skoraði fjórða mark liðsins í blálokin. Bæði lið enda með tvö stig, þremur stigum á eftir toppliðunum tveimur.

Inter Miami mætir PSG í 16 liða úrslitum, Lionel Messi mætir sínu fyrrum félagi semsagt, og Palmeiras mætir löndum sínum í Botafogo.

Inter Miami FC 2 - 2 Palmeiras
Mörk Inter Miami: Tadeo Allende (16), Luis Suarez (65)
Mörk Palmeiras: Paulinho (80), Mauricio (88)

Porto 4 - 4 Al Ahly
Mörk Porto: Rodrigo Mora 23', William Gomes 50', Samu Aghehowa 53', Pepê 89'.
Mörk Al Ahly: Wessam Abou Ali 15', 45'+2' víti, 51', Mohamed Ali Ben Romdhane 64'
Athugasemdir
banner