Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 12:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Kerkez á leið til Liverpool
Milos Kerkez í leik gegn Liverpool.
Milos Kerkez í leik gegn Liverpool.
Mynd: EPA
Milos Kerkez er að fljúga til Liverpool í dag frá Belgrad í Serbíu þar sem hann hefur verið í fríi. Þegar hann lendir í Englandi mun hann gangast undir læknisskoðun og ganga frá skiptum sínum til Liverpool.

Þessi serbneski Ungverji er að ganga í raðir Liverpool frá Bournemouth fyrir 40 milljónir punda. Hann mun skrifa undir fimm ára samning við Liverpool.

Richard Hughes, yfirmaður fótboltamála hjá Liverpool, þekkir Kerkez vel en hann keypti hann til Bournemouth á sínum tíma.

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Liverpool í sumar en þeir keyptu Florian Wirtz í síðustu viku. Sá er dýrasti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Hér fyrir neðan má sjá mynd af Kerkez í flugvélinni á leið til Englands.


Athugasemdir
banner