Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   mán 23. júní 2025 16:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baráttan um Jón Daða - „Hann er búinn að fá nokkur símtöl"
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Var frábær landsliðsmaður.
Var frábær landsliðsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrrum landsliðsmaðurinn Jón Daði Böðvarsson er á leið heim til Íslands og mun líklega semja við félag hér á landi í sumarglugganum.

Jón Daði er 33 ára framherji og gekk í raðir Burton Albion í janúarglugganum síðasta. Hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum og hjálpaði liðinu að halda sér í ensku C-deildinni.

Jón Daði lék um stuttan tíma með Wrexham á liðnu tímabili en hann er fyrrum leikmaður Bolton, Millwall, Reading, Wolves, Kaiserslautern og Viking í Noregi.

Núna er hann á leið heim en rætt var um hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag. Hvert fer Jón Daði?

„Ég ætla að segja Fram," sagði Tómas Þór Þórðarson. „Hann býr í Úlfarsárdalnum. Það fer líka eftir því hvort Framarar finni einhverja fjármuni og treysti sér í þetta. Ég veit svo sem ekki hversu mikið hann fylgist með en ég held að Rúnar Kristins sé maður sem geti sannfært hann og Jóni Daða myndi líða vel undir hans stjórn."

„Ég held að honum sé líka alveg sama hvort hann spili fyrir besta liðið eða sjöunda besta liðið. Hann er einstakur drengur.

„Þess vegna hugsar maður líka að hann geti vel farið í Selfoss," sagði Elvar Geir Magnússon en Tómas var ekki sammála því þar sem liðið er í Lengjudeildinni og hefur verið að flakka á milli þeirrar deildar og 2. deildar síðustu ár.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur Selfoss boðið Jóni Daða Böðvarssyni samning. Jón Daði er uppalinn hjá félaginu og lék síðast fyrir það árið 2012 áður en hann hélt út í atvinnumennsku þar sem hann hefur verið síðan. Samkvæmt heimildum hafa Fram og KR einnig áhuga og hann hefur líka verið orðaður við Víking.

„Þegar hann var í óvissu með framtíð sína síðasta þá fór hann á fund með Tomma á Krúsinni," sagði Elvar. „Ég held bara ekki að það gangi upp," sagði Tómas, sem er stuðningsmaður Víkings.

„Ég væri meira en allt í heiminum til í að sjá hann í Víkingstreyjunni. Maður veit ekki hvað menn ætla að gera. Það er biðin endalausa eftir Óttari (Magnúsi Karlssyni). Ef ég á að spá í spilin, þá held ég að það símtal verði tekið fyrst," sagði Tómas.

„Hann er búinn að fá nokkur símtöl, það er alveg ljóst," sagði Elvar. „Hann er vanmetnasti fótboltamaður Íslandssögunnar. Það er bara þannig," sagði Tómas en hægt er að hlusta á útvarpsþáttinn í heild sinni hér fyrir neðan.
Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskiptin á Skaganum
Athugasemdir
banner
banner