Varnarmaðurinn Nathaniel Phillips er að yfirgefa Liverpool en hann er núna í læknisskoðun hjá West Brom.
Hinn 28 ára gamli Phillips á bara eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool en ensku fjölmiðlamennirnir virðast ekki vita það nákvæmlega hvað West Brom greiðir fyrir hann.
Hinn 28 ára gamli Phillips á bara eitt ár eftir af samningi sínum við Liverpool en ensku fjölmiðlamennirnir virðast ekki vita það nákvæmlega hvað West Brom greiðir fyrir hann.
Phillips verður fyrsti leikmaðurinn sem Ryan Mason fær til West Brom, en Mason tók við liðinu á dögunum. Hann var áður í þjálfarateymi Tottenham.
Phillips kom til Liverpool frá Bolton árið 2016 og spilaði nokkuð stórt hlutverk með liðinu tímabilið 2020-21. Það kom óvænt upp vegna meiðsla í hópnum.
Síðan þá hefur hann ekki mikið spilað fyrir Liverpool en hann hefur verið lánaður til Stuttgart, Bournemouth, Celtic, Cardiff og síðast til Derby County.
West Brom hafnaði í níunda sæti Championship-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir