Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þróttur býður dönskum miðjumanni samning
Lengjudeildin
Mynd: Nyköbing
Danski miðillinn Bold fjallaði um það á dögunum að danski miðjumaðurinn Mads Carlson væri með samningstilboð á borðinu frá Þrótti Reykjavík.

Fótbolti.net hefur fengið þessi tíðindi staðfest en ekki er búið að skrifa undir samninginn. Sagt er að samningurinn sem í boði sé gildi út tímabilið en möguleiki á framlengingu eftir það.

Carlson er 26 ára og spilaði með Næstved í dönsku C-deildinni í vetur. Hann var áður á mála hjá Nyköbing, Lyngby og Midtjylland. Hann á að baki 93 leiki í dönsku B-deildinni og 45 leiki í C-deildinni á sínum ferli.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar 17. júlí. Þróttur er í 5. sæti Lengjudeildarinnar sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner