Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   þri 24. júní 2025 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Viktor Freyr: Myndast einhver læti og menn missa stjórn á sér
Viktor Freyr.
Viktor Freyr.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson.
Höskuldur Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst fyrst og fremst pirrandi að tapa niður tveimur stigum því mér fannst við eiga þau skilið," segir Viktor Freyr Sigurðsson, markmaður Fram, við Fótbolta.net í dag. „Við komumst oft í skyndisóknir sem við hefðum átt að nýta okkur betur."

Fótbolti.net hafði samband við Viktor eftir leikinn gegn Breiðabliki í gær þar sem umdeild vítaspyrna var dæmd í lok leiks og eftir að Breiðablik jafnaði varð mikill hasar og tvö rauð spjöld fóru á loft.

Höskuldur Gunnlaugsson, sem skoraði úr vítaspyrnunni, reyndi allt hvað hann get til að taka boltann af Viktori sem hélt á honum eftir jöfnunarmarkið, og gekk fyrirliðinn of langt, uppskar rauða spjaldið. Kyle McLagan, leikmaður Fram, dró Höskuld til hliðar og ýtti honum í hliðarnetið og fékk fyrir það rautt spjald.

Hvernig upplifir markmaðurinn þessa atburðarás?

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Fram

„Ég sá atvikið illa í leiknum, sá ekki hvort það var snerting eða ekki, en eftir að hafa horft á þetta aftur er þetta extra súrt að vinna ekki leikinn."

En atburðarásin eftir það?

„Eins og eftir lang flest mörk sem ég fæ á mig þá næ ég í boltann í netið og kem honum upp a miðju. En við það myndast einhver læti og menn missa stjórn á sér," segir Viktor yfirvegaður.

Áttir þú von á þessu?

„Ég átti nú alveg von á því að einhver myndi koma og ná í boltann en átti ekki von á því sem gerðist," segir Viktor.

Þess má geta að hann er uppalinn hjá Breiðabliki, fór til Leiknis í 3. flokki, eftir tímabilið 2014, og fór svo frá Leikni í Fram í vetur.
Athugasemdir
banner
banner