„Þetta verður ekki mikið sætara en þetta," sagði Jökull Andrésson, markvörður Aftureldingar, eftir endurkomusigur gegn ÍBV í Eyjum í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 2 Afturelding
„Þetta snýst um að hjálpa liðsfélögunum þegar þú þarft þess. Þeir eru að sparka boltanum þúsundir milljón sinnum í burtu fyrir þig þannig þa er eins gott að ég er tilbúinn fyrir þá þegar ég þarf að vera það."
„Þessi völlur er ekkert grín. Þetta er liðsheildin sem Mosfellingar og Afturelding er með, við komum saman og áttum okkur á því hvernig við ætlum að vinna þennan leik. Ég er ótrúlega stoltur af strákunum mínum," sagði Jökull.
Mosfellingar fjölmenntu í stúkuna og létu vel í sér heyra.
„Þessir Mosfellingar sko. Ég ólst hérna upp og ég var í þessari sömu geðveiki þegar ég var lítill. Þetta er besti bærinn á jörðinni ætla ég að segja. Ég er svo þakklátur þeim að mæta til Vestmannaeyja klukkan 6 á mánudegi, það er ekkert grín. Ég er þakklátur Mosfellingum og við höldum áfram að vinna fyrir þau," sagði Jökull.
Athugasemdir