Þýska félagið Borussia Dortmund vill halda enska miðjumanninum Carney Chukwuemeka áfram hjá félaginu út HM félagsliða, en vill ekki greiða fyrir að halda honum lengur.
Chukwuemeka er á láni hjá Dortmund frá Chelsea en lánssamningurinn rennur út um mánaðamótin.
HM félagsliða lýkur um miðjan júlí og því ljóst að Dortmund þarf að ná samkomulagi við Chelsea ætli það sér að halda honum í hópnum út mótið.
Sport1 segir að Dortmund sé ekki reiðubúið að greiða aukalega fyrir að halda honum lengur, en Chelsea hefur krafist þess að félagið geri það.
Dortmund hefur fært rök fyrir því að halda honum áfram, því ef hann spilar vel mun það reynast auðveldara fyrir Chelsea að selja hann í sumarglugganum.
Einnig kemur fram að Dortmund hafi engan áhuga á því að gera félagaskipti hans varanleg þar sem það hefur þegar tryggt sér þjónustu Jobe Bellingham.
Athugasemdir